"Sumar í Napólí" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Sumar í Napólí

20.900 kr

Dagsetning

- +

Á þessu námskeiði sláumst við í för með Valerio Gargiulo og eldum létta og ferska rétti í anda Suður-Ítalíu, þar sem ilmur, litir og sumarleg stemning er í fyrirrúmi.

Valerio er fæddur og uppalinn í Napólí en hefur búið á Íslandi síðan 2002. Hann er lögfræðingur að mennt, rithöfundur og ástríðukokkur með sérstakt lag á að færa ítalska matarmenningu nær íslenskum aðstæðum.

Á námskeiðinu eldum við:

  • Orzotto ai funghi - orzo pasta eldað líkt og risotto, með sveppum, parmesan osti og fersku timian. Valerio segir:“ hlýr og kremkenndur réttur með djúpu og ilmríku bragði“
  • Spaghetti alla Nerano – sumarlegur pastaréttur með léttsteiktum kúrbít og parmesan. Valerio segir: „silkimjúkur réttur í fullkomnu jafnvægi“.
  • Polpetta al limone – léttar napólískar kjötbollur með sítrónu, parmesan og ferskum kryddjurtum. Valerio segir: „ferskar og ilmandi kjötbollur með léttu sumarbragði“.
  • Bruschette miste – brúskettur með mismunandi „toppings“. Valerio segir: „brúskettur í ekta Miðjarðarhafs stíl, með fersku og litríku „áleggi“
  • Carote alla scapece – súrsætar gulrætur maríneðar í ediki, hvítlauk og myntu. Valerio segir: „klassískur napólískur réttur með fersku yfirbragði“.
  • Ricotta með hunangi og sítrónuberki – Valerio segir: „silkimjúkur og ferskur eftirréttur með mildri sætu og suðrænum tónum“.

Innifalið er allt hráefni, kennsla, þjónusta aðstoðarmanns/uppvaskara, afnot af svuntu og öllum áhöldum. Þáttakendur fá allar uppskriftar sendar með tölvupósti eftir námskeiðið.

Kennari á námskeiðinu er Valerio Gargiulo, rithöfundur, lögfræðingur og ástríðukokkur

Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í um 2 1/2 klst.

Lágmarksfjöldi þátttakenda á þetta námskeið er 10.

Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja.