"Mexikóskt "street food" á tveimur tímum" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Mexikóskt "street food" á tveimur tímum

14.900 kr

Dagsetning

- +

Hér er á ferðinni stutt námskeið sem ætti að höfða til allra aldurshópa. Við einbeitum okkur að tortillu-kökum og lærum að gera þær frá grunni úr maísmjöli. Úr þeim gerum við „taco´s“ með fjórum mismunandi fyllingum: fisk, hægeldaðri grísasíðu, kjúkling og grænmetisfyllingu. Þið lærið líka að gera gómsætt lárperumauk, salsa verde (græna sósu) og tómatsalsa. Límónan er ekki langt undan til að koma öllum í sanna Mexíkóska stemmingu. Eftir að búið er að útbúa „taco´s“ er smakkað á öllum tegundum sem eru búnar til.

Á námskeiðinu er kennt að gera:

  • Tortillakökur frá grunni
  • 4 mismunandi fyllingar í taco´s
  • Ediksleginn rauðlauk
  • Lárperumauk
  • Salsa verde
  • Pico de gallo (tómatsalsa)
  • Chipotle-límónusósu

Innifalið er allt hráefni, fyrsta flokks aðstaða og afnot af svuntu og áhöldum sem til þarf. Einnig er aðstoðarmanneskja/uppvaskari þátttakendum innan handar á námskeiðinu. Þátttakendur fá uppskriftirnar með sér til eignar.

Kennari á námskeiðinu er Sigríður Björk Bragadóttir matreiðslumaður og eigandi Salt Eldhúss.

Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í 2 klst

Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja, sem endurgreiða námskeiðskostnað.