"Matarveisla frá Túnis með Söfu Jemai" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Matarveisla frá Túnis með Söfu Jemai

20.900 kr

Dagsetning

- +

Safa Jemai er frá Bizerte, sem er lítill sjávarbær í norðurhluta Túnis. Hún ólst upp við góðan mat sem mamma hennar eldaði en að sögn Söfu er hún snillingur í eldhúsinu. Þegar Safa var lítil gerði mamma hennar kúskús frá grunni úr durum hveiti, þ.e. búnar eru til smáar hveitikúlur úr hveitinu. Þetta var gert á hverju sumri og algengt var að fjölskyldan sameinaðist við það og voru þá gerðar birgðir sem entust næsta vetur. Safa hefur búið á Íslandi í sex ár. Hún er hugbúnaðarverkfræðingur að mennt og rekur tvö fyrirtæki hér á landi.  Annað fyrirtækið er í hugbúnaðargeiranum en hitt er Mabrúka (heitir í höfuðið á mömmu Söfu), sem býr til handgert krydd frá grunni í  Túnis. Á námskeiðinu ætlar Safa að deila með ykkur nokkrum af uppáhaldsréttunum sínum frá barnæsku sinni í Túnis.

Á námskeiðinu gerum við:

  • Slata mechouia – Salat með grilluðu grænmeti og túnfisk 
  • Slata omek houria – Salat með maukuðum gulrótum, kartöflum og harissu
  • Brauð frá Túnis
  • Tajine tounsi – Couscous með kjúkling að hætti Túnisbúa
  • Sítrónukaka að hætti Söfu

Kennt er á íslensku

Innifalið er allt hráefni, kennsla, þjónusta aðstoðarmanns/uppvaskara, afnot af svuntu og öllum áhöldum. Þáttakendur fá allar uppskriftar sendar með tölvupósti eftir námskeiðið.

Kennari á námskeiðinu er Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur

Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í um 3 klst.

Kennt er á íslensku

Lágmarksfjöldi þátttakenda á þetta námskeið er 10.

Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja.