"Klassískar sósur" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Klassískar sósur

16.900 kr
- +

Klassískar sósur eru eitthvað sem oft vill vefjast fyrir fólki að elda og margir eru hræddir við að ráðast í að gera bernaisesósu, rauðvínssósu, piparsósu eða soðsósu frá grunni. Girnileg sósa setur punktinn yfir I-ið ef hún er góð og gerir hversdagsmat að góðum veislumat. Á þessu námskeiði lærum við að gera soð, lærum grunnsósurnar og hvernig má útfæra þær á mismunandi vegu. Matthías Þórarinsson matreiðslumaður kann sitthvað fyrir sér í sósugerð og ætlar hann að sýna fólki hversu einföld sósugerðin getur verið, ef maður bara kann réttu handtökin. Við lærum hvernig á að smakka sósu til, hvaða verkfæri má nota við að leiðrétta hana og öðlast þannig öryggi og skilning í grundvallaratriðum í sósugerðinni. Í lok námskeiðs setjumst við til borðs og með einfaldri kjötmáltíð og njótum þess að bragða á afrakstrinum.

Á námskeiðinu gerum við:

  • Nautasoð
  • Kjúklingasoð
  • Piparsósu
  • Rauðvínssósu
  • Bernaise-sósu
  • Bechamel-sósu (hvítur jafningur/uppstúf)
  • Undirstöðuatriði sous-vide eldamennsku

Næstu námskeið

Dagsetningar 2022 í vinnslu

Innifalið er allt hráefni, þjónusta uppvaskara/aðstoðarmanns, vínglas með matnum, afnot af svuntu og öllum áhöldum ásamt uppskriftamöppu til að taka með heim.

Kennari er Matthías Þórarinsson matreiðslumaður

Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í 3,5-4 klst.

Lágmarksfjöldi þátttakenda á þetta námskeið er 8.

Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja, sem endurgreiða námskeiðskostnað.