Jólin koma
Í aðdraganda Jólanna er til valið að huga að því að útbúa eitthvað góðgæti til að eiga um Jólin og/eða til að gefa vinum og ættingjum í Jólagjöf. Á þessu námskeiði ætlum við að eiga notalega stund með Sirrý og útbúa alls konar gúmmelaði sem við tökum svo með okkur heim. Við ætlum líka að kynnast og smakka á nokkrum völdum kræsingum til viðbótar, sem eiga vel heima í Jóla stemningunni.
Það sem við gerum á námskeiðinu og þátttakendur taka svo með sér heim:
- Kjúklingalifrarkæfa
- Mandarínu marmelaði
- Ensk Jólakaka í púrtvíni
- Jóla rauðrófur
Það sem við smökkum á námskeiðinu:
- Dukkah með olíu á brauði
- Ávaxta- og hnetublanda með osti
- Sveskjur í koníaki með ís
- Rauðlaukssulta með lifrarkæfu á brauði
Innifalið er allt hráefni, kennsla matreiðslumanns, þjónusta uppvaskara/aðstoðarmanns, afnot af svuntu og öllum áhöldum og uppskriftir af bæði öllu sem gert er og sem smakkað er.
Kennari á námskeiðinu er Sigríður Björk Bragadóttir, matreiðslumaður og eigandi Salt Eldhúss
Námskeiðið hefst kl 17:00 á virkum dögum en kl 12:00 á laugardögum og stendur í um 3 klst.
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þetta námskeið er 10.