Jóla - Galdrar
Á aðventukvöldunum með Sirrý ætlum við að galdra fram allskyns kræsingar sem gott er að gæða sér á um jólin eða á aðventunni en henta líka einstaklega vel sem jólagjafir. Við búum til notalega jólastemmningu á meðan við sjóðum, sultum, steikjum og föndrum og hlustum á jólalög.
Afrakstrinum munum við svo pakka í fallegar umbúðir, tilbúið fyrir ykkur að njóta eða gefa í gjafir þegar nær dregur jólum.
Við verðum líka með sýnikennslu og smökkun á nokkrum fljótlegum og auðveldum matarjólagjöfum. Í matarhléi gæðum við okkur á ljúffengri súpu og brauði.
Gerum: kjúklingalifrarpaté Salt Eldhúss, breskar smjörkökur (shortbread), rauðlaukssultu, jólaperur meða kanel og kúrenum.
Sýnum: sýrðan rauðlauk, jóla rauðrófur.
Smökkum: jóla rauðrófur, fíkjusultu, ávaxtablöndu með ost, dukkah.
Innifalið er allt hráefni, kennsla matreiðslumanns, þjónusta uppvaskara/aðstoðarmanns, afnot af svuntu og öllum áhöldum, umbúðir fyrir kræsingarnar og uppskriftir. Við bjóðum þátttakendum upp á súpu og brauð í kvöldverðarhléi.
Kennari á námskeiðinu er Sigríður Björk Bragadóttir, matreiðslumaður og eigandi Salt Eldhúss
Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í um 3 klst.
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þetta námskeið er 8.
Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja, sem endurgreiða námskeiðskostnað.