"Hrekkjavökupartý Salt Eldhúss" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Hrekkjavökupartý Salt Eldhúss

17.900 kr

Dagsetning

- +

Við höldum hrekkjavökupartý!

Við skerum út grasker, skreytum hræðilegar bollakökur, búum til blóðugan eftirrétt og hrekkjum mömmu og pabba aðeins!

Komum okkur í hrekkjavöku gír í eldhúsinu hjá Salt Eldhús.

 

Á Hrekkjavöku þetta árið umbreytum við Salt Eldhúsi og gerum það svolítið draugalegt, ögn óhugnalegt, en þó notalegt. Við bjóðum börn og foreldra velkomin í skemmtilega stund þar sem við leggjum áherslu á að hafa gaman, borða eitthvað gott, taka eitthvað með heim og vonandi skapa minningar.

Við byrjum á að vinna með graskerið - mokum innvolsinu út (með höndunum!) og teiknum á það ógnvænlegt andlit. Látum svo fullorðna fólkið um hnífinn!
 

Þegar graskerið er tilbúið höldum við beina leið í eftirréttaeldhúsið. Við gerum okkar útgáfu af “panna cotta”, með íslensku skyri (mein hollt sjáðu til!) og skreytum svo með blóði!

Við bökum svo og skreytum bollakökur eins hræðilega og hugmyndaflugið leyfir.

 

Á meðan þessu öllu stendur hefur teymið okkar galdrað fram rjúkandi graskerssúpu og nýbakað brauð sem við borðum saman.

Þegar við erum öll orðin södd af súpu fara krakkarnir afsíðis með teyminu okkar og  sýna foreldrum af hverju þetta heitir “Hrekkja”vaka.

 

Búningar að sjálfsögðu velkomnir!

Innifalið:

Grasker og bollakökur til að taka heim.

Allt hráefni

Aðgangur að öllum áhöldum

Kennsla, aðstoð, þrif og frágangur!

Graskerssúpa, nýbakað brauð og eftirréttir.

Allar uppskriftir sendar á pósti.

Kennarar á námskeiðinu eru Hjörtur Atli, vampíra og eigandi Salt Eldhús og Emilía Björk (6 ára).

Námskeiðið hefst kl 11:00 og stendur í c.a. 3klst.

 

Gott að vita:

Námskeiðið er hugsað fyrir börn og við ætlum ekki að taka okkur mjög alvarlega, heldur fyrst og fremst reyna að hafa svolítið gaman. Við ímyndum okkur að börn frá 5-10 ára muni hafa sérlega gaman af; en þið þekkið ykkar börn og við tökum á móti öllum fagnandi hendi, þó þau séu ögn eldri eða yngri.

Athugið:

Verðið miðast við barn og foreldri og hráefnið sem fylgir því. Þ.e.a.s. 1 grasker, einn skammtur af bollakökum osfrv.
Endilega hafið samband við okkur - [email protected] - ef þið hafið annarsskonar samsetningu og við finnum út úr því í sameiningu!