Beef Wellington
Beef Wellington er glæsilegur, klassískur réttur og afar fallegur á veisluborðið. Það er því bæði gagnlegt og gaman að kunna að gera Beef Wellington,en að sama skapi getur það vafist fyrir fólki hvernig á að bera sig að svo vel takist til, ekki síst ef á að bjóða til veislu.
Við höfum því fengið Ægir Friðriksson matreiðslumeistara til að leiðbeina á þessu námskeiði og kenna þátttakendum að gera þennan fræga rétt. Ægir er reynslubolti í bransanum og er núna kennari við Hótel og Veitingaskólan.
Á námskeiðinu mun Ægir fara yfir og sýna þátttakendum frá a-ö hvernig á að bera sig að við að undirbúa og matreiða Beef Wellington. Í kjölfarið munu þátttakendur hver fyrir sig undirbúa og matreiða Beef Wellington.
Á námskeiðinu er einnig farið í hvernig á að gera meðlæti, soðsósu, fondant kartöflur og gljáðar gulrætur. Við gerum líka fallegan og Jólalegan eftirrétt með mascarpone ost og berjum. Í lok námskeiðsins er síðan sest til borðs og við gæðum okkur á afrakstrinum.
Á námskeiðinu gerum við:
- Beef Wellington
- Soðsósu
- Fondant kartöflur
- Gljáðar gulrætur
- Mascarpone krem og berja-melba
Innifalið er allt hráefni, þjónusta uppvaskara/aðstoðarmanns, afnot af svuntu og öllum áhöldum ásamt uppskriftum til að taka með heim. Síðast en ekki síst er slegið upp veislu í lok námskeiðsins, þar sem þátttakendur gæða sér á afrakstrinum
Kennari er Ægir Friðriksson matreiðslumeistari og kennari við Hótel- og Veitingaskólann
Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í ca 31/2 klst.
Lágmarksfjöldi þátttakenda á þetta námskeið er 12.
Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja, sem endurgreiða námskeiðskostnað.