"Street-food grænmetisréttir" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu

Street-food grænmetisréttir

16.900 kr

Dagsetning

- +

Næstum hvar sem þú drepur niður fæti í heiminum finnurðu matarvagn á næsta götuhorni með eitthvað gómsætt að bjóða upp á. Á þessu námskeiði flökkum við um heiminn og eldum vinsælan götumat frá mismunandi löndum og einbeitum okkur að grænmeti. Við eldum nokkra spennandi rétti og kynnumst öllum ljúffengu sósunum og meðlætinu sem gerir götumat svo gómsætan. Við matreiðum tofu á spennandi máta eins og Kínverjar elska að gera það og gerum karamelliseraða sósu með, er vonandi besta tofu sem þið hafið smakkað; steikjum bláar mexíkóskar maístortillur og gerum sterka mole-sósu og djúsí fyllingar í þær; síðan indverskar dosa pönnukökur og fyllum með kryddaðri kartöflufyllingu og chutney; ferskar vorrúllur með grænmeti og núðlum og gerum súr-sæta sósu með; japanska “gyosa” dumplinga sem eru steiktir á pönnu og að síðustu fyllta filodeigs-böggla með ferskum kryddum og osti.   

Á námskeiðinu eldum við:

  • Tofu með pipar, djúpsteikt með súrsætri chilisósu – Kína
  • Maíspönnukökur úr bláum maís með mole-sósu og grænmeti - Mexíkó
  • Masala dosa með kryddaðri kartöflufyllingu og chutney - Indland
  • Vorrúlla með fersku grænmeti og núðlum, súrsæt sósa – Vietnam
  • Dumplingar “gyosa” – Japan
  • Brivat, með ferskum kryddum og fetaostafyllingu - Marokkó

Innifalið er allt hráefni, kennsla matreiðslumanns, þjónusta uppvaskara/aðstoðarmanns, afnot af svuntu og öllum áhöldum. Þátttakendur fá uppskriftir af því sem gert er til að taka með sér heim. Síðast en ekki síst er slegið upp veislu í lok námskeiðsins, þar sem þátttakendur gæða sér á afrakstrinum.

Kennari á námskeiðinu er Sigríður Björk Bragadóttir matreiðslumaður og eigandi Salt Eldhúss

Námskeiðið hefst kl 17:00 og stendur í u.þ.b. 2 1/2 klst

Við minnum fólk á námskeiðs- og tómstundastyrki verkalýðsfélaga og fyrirtækja, sem endurgreiða námskeiðskostnað.